„Sigur fyrir alla“

Það er alveg merkilegt að upplifa allt í einu að fólk hér er almennt meðvitað um hvað er að gerast í íslenskri pólitík.  Undanfarna daga hef ég átt samræður við bæði vinnufélaga og vini um stjórnarslit og myndun nýrrar ríkisstjórnar og viðmælendurnir eru alveg með á nótunum.  Sérstaklega hefur mér komið á óvart hvað það hefur vakið mikla athygli hér að Jóhanna Sigurðardóttir er samkynhneigð því að í mínum huga þá skiptir það ekki nokkru einasta máli.  Alveg eins væri náttúrulega normal að það væri ekki fréttaefni að það verður jafnt hlutfall kvenna og karla í ríkisstjórn og að forsætisráðherrann er kona.  En lengra erum við víst ekki komin.  Ég rakst á þessa frétt núna á BBC undir þeirri dramatísku undirfyrirsögn Will Iceland's openly lesbian PM change history? en hún endurspeglar þau viðbrögð sem ég hef fengið hérna.

Það kyngir annars niður snjó hér í London í þessum rituðum - meiri snjó en ég hef nokkru sinni séð hér í borg!


mbl.is Slá skjaldborg um heimilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinna eða ekki vinna

Hversu mörg sunnudagskvöld hef ég ekki óskað þess að ég þyrfti ekki að fara í vinnuna daginn eftir?  Þessi ósk mín rættist núna á sunnudaginn en rétt áður en ég fór að sofa leit ég á símann minn og sá þá að ég hafði fengið skilaboð þá í eftirmiðdaginn um að það hefði flætt inn á skrifstofuna og búllan yrði lokuð í einn eða tvo daga.  Ég er sem sagt búin að vera í fríi það sem af er vikunni og á ekki að mæta fyrr en 11 í dag!  Ég held að ég gæti alveg vanist því að vera svona heimavinnandi húsmóðir (á launum samt, væri ekki gaman að missa vinnuna), það er alveg merkilegt hvað tíminn líður þó að maður þurfi varla að gera nokkurn skapaðan hlut frekar en maður vill.  Ég notaði bara tækifærið og var frekar húsleg svona, tók til og þreif íbúðina, verslaði í matinn, eldaði og bakaði meira að segja brownies fyrir kóræfingu í gær!

Gleðileg jól!

Agalega er jólalegt í rigningunni og rokinu!  Kannski ekki en svolítið þjóðlegt samt.  Gott til að sýna útlendingnum sem er með í för ekta íslenskt vetrarveður.  Merkilegt hvað jólin verða miklu skemmtilegri þegar allt virðist nýtt og framandi fyrir ferðafélaganum, jólasveinarnir eru ótrúlega spennandi og það er meira að segja séns á að ég prófi skötu í fyrsta skipti í mörg ár á morgun!

Allavega, gleðileg jól og farsælt komandi ár til allra (eða þeirra tveggja eða svo sem lesa þetta ennþá...).  Hlakka til að sjá sem flesta næstu vikuna!


Stórveldið Ísland

Mér finnst nú þetta svolítið hjákátlegt sett í samhengi við þetta.  Það er ekki laust við að maður fari eilítið hjá sér svo ég segi nú ekki meir.

Klukk

Ji, ég sé að ég hef verið klukkuð, jæja þá...

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
Bréfberi
Kaffibarþjónn
Búðarkona
Aðstoðarkennari í HÍ
og margt fleira

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:
Hable con ella
Amélie
As Good as it Gets
Börn náttúrunnar

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Víðimelur 21, Reykjavík
Skálatún við Suðurströnd, Seltjarnarnesi
119 Paseo de Grácia, Barcelona
194 Drayton Park, London

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Desperate Housevifes
Ugly Betty
Peep Show
How to Look Good Naked (þegar mamma var hérna í sumar þá mættum við gok sjálfum trítlandi eftir suðurbakkanum með ungan mann upp á arminn.  meira að segja mamma skríkti eins og gelgja!)

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Peking
New York
Bahama eyjar
Spánn

Fjórar síður sem ég skoða daglega (fyrir utan bloggsíður):
hotmail.com (ógisslega leim, allir sem eru kúl eru með gmail)
mbl.is
facebook.com
news.bbc.co.uk

Fernt matarkyns sem ég held upp á:
Súkkulaðirúsínur frá Nóa
Bananar
Tælenskt karrý
Jólamatur af öllu tagi

Fjórar bækur/blöð sem ég les oft:
Les bækur yfirleitt bara einu sinni hvert stykki, er núna að lesa Óreiðu á striga eftir Kristínu Marju Baldursdóttur
The London Paper (slúðurblað sem gerir túbuferðina heim úr vinnunni aðeins bærilegri)
The Guardian (laugardagsútgáfa guardian dugir mér sem lesefni í næstum viku)
The Economist (smá vinstri-hægri blanda í gangi hérna)

Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:
Er núna heima í sófa með sofandi strák við hliðina á mér.  Það er alveg í lagi sko.
Annars væri ég til í að vera til dæmis í leikhúsi, einhvers staðar í íslenskri náttúru í góðu veðri eða í Vesturbæjarlauginni.

Eru ekki allir búnir að svara þessu bara?  Held ég sleppi því bara að klukka fleiri í þetta skiptið!


Inní mér syngur vitleysingur

Ég heyrði um daginn útvarpsmann á einni BBC útvarpsstöðinni reyna að hafa þetta eftir.  Errin voru alveg stórkostlega ýkt og var hrein unun að hlýða á.  Alveg dýrlegt.  Hvenær hefði manni dottið í hug að íslenska væri bara málið eftir allt saman?

Hræsni

Sarah Palin er búin að vera eitt helsta umræðuefni undanfarinna daga, bæði í fjölmiðlum og hvar sem ég hitti pólitískt sinnaða vini og er endalaust hægt að hneykslast.  Jú, hún er á móti fóstureyðingum og notar litla barnið sitt með Downs Syndrome til að sýna fram á að henni er fúlasta alvara.  Ég mundi aldrei halda því fram að það ætti að eyða öllum fóstrum með Downs Syndrome en getur konan virkilega talað fyrir fjöldann?  Hún mætti í vinnu þremur dögum eftir fæðinguna og er það deginum ljósara að hún er með mikla aðstoð við umönnun barnsins.  Það geta ekki allir sagt í landi þar sem grunn heilbrigðisþjónusta er alls ekki á allra færi. 

Sarah er líka á móti kynlífi fyrir hjónaband og á móti kynfræðslu í skólum því auðvitað mundi slík fræðsla einungis stuðla að hórdómi.  Ofsalega er þetta sniðugt, sautján ára dóttir hennar, ógift (alltaf tekið fram í fréttum) er komin marga mánuði á leið!  Unglingar gera nefnilega alltaf eins og foreldrar þeirra segja þeim.  En hún ætlar víst að giftast barnsföðurnum, líka sautján ára, svo að það er bara gott og blessað.  Aftur, getur konan talað fyrir fjöldann?  Ég er alveg viss um að Bristol Palin mun fara í góðan háskóla og halda áfram með lífið sitt ekki svo ósvipað öðrum sautján ára unglingum þrátt fyrir að eiga lítið barn.  Foreldrar hennar eru nefnilega ríkir og hafa efni á að borga fyrir barnagæslu um ókomin ár.  Ég efast einhvern veginn um að það sama eigi við allar þær 750.000 unglingsstúlkur sem eignast börn í Bandaríkjunum á hverju ári.

Annars á hressari nótum, þá var ég í París um þar síðustu helgi og skemmti mér ljómandi vel.  Alveg yndisleg borg og mikið að sjá.  Svo mikið að við stoppuðum ekki í túrismanum og hélt ég að fæturnir á mér mundu gefast upp alveg nokkrum sinnum á dag!  Ég setti myndir inn á Facebook síðuna mína fyrir þá sem eru þar!

 

 


Tómatabjörgunin mikla

Þó við séum ekki með garð í ár eins og í fyrra er það engin afsökun fyrir að rækta ekki kryddjurtir og grænmeti.  Við keyptum í vor svona löng blómaker sem við komum fyrir í gluggasyllunum utan á gluggunum þar sem við ræktum fullt af kryddjurtum og nokkrar tegundir af grænmeti.  Tómatatréð er orðið frekar stórt og farið að bóla á nokkrum litlum grænum tómötum sem verður spennandi að sjá og borða eftir nokkrar vikur.  Nema hvað, núna í eftirmiðdaginn var okkur litið út um svefnherbergisgluggann þar sem potturinn með tómötunum var en þá var gluggasyllan bara auð!  Í nótt og í dag var ekkert sérstaklega gott veður, komu miklar skúrir með vindhviðum annað slagið og hlýtur eitthvað að hafa tekið í tómataplöntuna því að kerið lá með tómötum og öðrum ófullvaxta grænmetisplöntum á hliðinni uppi á þakinu á litla einnar hæðar húsinu sem er fast við okkar hús.  Þá voru góð ráð dýr og flýttum við okkur að banka upp á hjá nágrönnunum (sem við höfum aldrei talað við áður) og spurðum hvort við mættum ekki skella okkur út á þak til að sækja tómatana okkar!  Við vippuðum okkur út um glugga og út á flatt þakið og sáum okkur til mikillar gleði að plönturnar voru heilar á húfi þrátt fyrir fall niður tvær hæðir og kerið ekki einu sinni sprungið.  Þeir fara samt ekki aftur í gluggakistuna í bráð!

Nýtt útlit, nýtt líf

...vonandi.  Ég hef verið gagnrýnd fyrir mikla bloggleti að undanförnu.  Mér til afsökunar þá er tölvan mín búin að vera frekar biluð alveg síðan harði diskurinn í henni dó.  Ég fékk mér alveg nýjan disk og góðum mönnum tókst að klambra þessu saman og redda megninu af gögnunum en tölvan hefur bara ekki verið söm við sig síðan. 

Allavega.  Ég er núna búin að vera í London í viku eftir viku í Reykjavík og veit ekki hvort ég er meira pirruð á margmenninu hérna eða fámenninu í Reykjavík.  Fyrsta daginn minn heima labbaði ég niður í Vesturbæjarlaug og það var bara eins og borgin hefði verið yfirgefin.  Það sást ekki sála á götunum, hvorki gangandi né akandi.  Í dag fór ég svo á Oxfordstræti.  það var spáð rigningu svo ég var að vona að það yrðu kannski ekki allt of margir.  En nei, það var krökkt af fólki eins og ALLTAF á laugardögum, döh.  Og auðvitað allir með regnhlífar svo að fyrir utan að reyna að ganga ekki á annað fólk þurfti maður að passa sig líka að verða ekki fyrir stingandi regnhlífum!

Annars þá fjárfesti ég í nýjum gallabuxum í þessari verslunarferð minni.  Þær eru í þeirri allra minnstu stærð sem ég hef nokkru sinni komist í eða stærð 25 (jafngildir breskri 6-u!).  Ég er alls ekki að grobba mig af því að hafa grennst eða neitt svoleiðis því að ég hef alls ekki grennst neitt og buxurnar eru ekkert pínulitlar. Til samanburðar þá notaði ég gallabuxur númer 28 þegar ég var svona 14 og var pottþétt minni um mig þá en ég er núna.  Ég held að þetta sé samsæri verslunareigenda.  Það er nefnilega miklu meira upplífgandi að kaupa eitthvað í lítilli stærð en stórri.  Ég hef sko alveg sleppt því að kaupa flíkur af því að medium var of lítið...


Tónleikar hér og tónleikar þar

Það er helst í fréttum að ég fór á Radiohead tónleika á miðvikudaginn í Victoria Park í London.  Það var alveg æði, ég fékk netta nostalgíu þegar þeir spiluðu Karma Police og allir sungu með.  Á fimmtudaginn kemur fer ég svo á aðra stóra tónleika í Hyde Park, af aðeins öðru tagi.  Litli bró kemur í heimsókn gagngert til að fara á tónleikana og ég gat ekki látið hann fara einan svo ég ákvað að skella mér bara með.  Það verða að vísu nokkur númer á þessum tónleikum en aðalstjarnan er hinn eini sanni Jay-Z! Jó niggah!  Við erum búin að grínast í vinnunni að ég ætti að fá lánaðar gallabuxur af Mike, setja stóra hringi í eyrun og greiða hárið aftur og taka þetta bara alla leið!  

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband