Bloggfærslur mánaðarins, júní 2006

Ritskoðað!

Mér er strax að takast að verða latur bloggari!  Það er bara einu sinni þannig að tjáningarþörfin mín fær ekki alltaf útrás á sama vettvangi.  Það er til dæmis ýmislegt sem mér liggur á hjarta - og vildi fegin fá komment á - þessa dagana sem er bara ekki við hæfi að tjá sig um á svona opinberum vettvangi.  Þess vegna verður dagbókin frekar fyrir valinu í þetta skiptið.  Get ekki heldur bara gefið hana upp á bátinn, greyið, þrátt fyrir að vera orðin svona gífurlega tæknivædd!

 

Hverjir eru annars að lesa þetta?  Miðað við hvað ég hef sagt fáum þá finnst mér lesendafjöldinn furðulega mikill.  Ekki vera feimin að kommenta og skrifa í gestabókina!  Ég lofa svo að þetta verður skemmtilegra og vonandi meira krassandi í vetur.  Ég geri mér líka vonir um að verða þá jafnvel í ADSL sambandi í staðinn fyrir að blogga með innhringinettengingu og snúrunni úr símanum... 


19. júní

Ahhh, mér líður svo vel í dag!  Það er svo gott að vera í fríi og þurfa ekki að gera nokkurn skapaðan hlut frekar en mann langar til.  Byrjaði daginn á því að fara í jóga og það var eiginlega erfiðara en ég hélt þó að þessi tími hafi samt ekki þótt sérstaklega erfiður.  Ég er náttúrulega algjör byrjandi í þessu, veit ekkert hvað allar þessar stellingar heita og get seint talist liðug.  Þetta var nú samt ágætis kvenleg byrjun á kvenréttindadeginum (kvenlegra en að lyfta lóðum að minnsta kosti, sem ég er aðeins vanari að gera) þó að ég viti ekki hvort ég hafi verið neitt sérstaklega mikil dama þar sem ég rembdist við að fetta mig og bretta í réttar áttir og halda jafnvægi að auki.  Held ég sé bara að fá harðsperrur strax!

 

Annars þá finnst mér eiginlega sorglegt að það þurfi enn að halda upp á daga eins og daginn í dag og kvennafrídaginn síðastliðið haust.  Auðvitað ættu þessir dagar fyrir löngu að vera orðnir ónauðsynlegir.  Mér finnst líka sorglegt þegar ég heyri af stelpum á mínum aldri sem láta bjóða sér að vinna öll heimilisverkin samhliða fullri vinnu eða námi, jafnvel hvoru tveggja, af því að kærastinn vinnur svo mikið eða fær miklu hærra kaup.  (Af hverju skyldi það líka alltaf vera þannig að það sé kærastinn sem fær hærra kaup?)  Ég held nefnilega að kvenréttindi hafi mikið með okkur sjálfar að gera og hugarfar okkar.  Það þýðir ekki bara að skella skuldinni á alla „vondu“ kallana sem vilja ekki ráða konur í góðar stöður og eru lélegir í uppvaskinu.  Ef við höfum ekki trú á okkur sjálfar, hver á þá að hafa hana?  Ég er líka viss um að það geta allir lært að vaska upp Glottandi


Blogg um blogg...

„Það er bara tvöfalt vaff, tvöfalt vaff, tvöfalt vaff, punktur.  Og svo steinakleina og svo punktur.  Svo bé, ell, o, gé, og punktur is“ heyrði ég mömmu segja við vinkonu sína í símann áðan.  Hún er sem sagt að breiða út boðskapinn.  Voða stolt af því hvað ég sé flink að skrifa svona síðu.  „Og svo er líka fleira svona fólk þarna inni“ sagði hún svo með andköfum.  Hún átti þá við linkana á hinar bloggsíðurnar, alveg hlessa á því hvernig þetta virkar nú allt saman.  „Og hvernig finnur svo fólk þessa síðu?“ og „hverjir lesa þetta eiginlega?“ eru spurningar sem ég hef þurft að svara nokkrum sinnum undanfarna daga.  

Fyrirgefðu mamma að ég skuli vera að segja frá þessu, þetta er bara pínu fyndið. 

Eins gott að passa svo hvað maður lætur flakka, bráðum verður öll ættin búin að frétta af þessu ásamt vinkonuherskara mömmu.  Það er samt kannski ekkert skrýtið að mömmu finnist þetta furðulegt allt saman.  Svona miðað við að bara þegar ég byrjaði í menntaskóla, sem var ekki fyrir neitt svo afskaplega löngu síðan, þá kunni ég ekkert að nota internetið sjálf.  Við áttum ekki einu sinni tölvu!


Draumalandið?

Ég hef aldrei haft mikið álit á sjálfshjálparbókum og ákvað því að hundsa undirtitil Draumalandsins: „Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð“.  Það hlyti að vera einhver brandari.  Ég var að ljúka við bókina rétt áðan og það rann upp fyrir mér ljós.  Þetta er nefnilega sjálfshjálparbók í orðsins fyllstu merkingu.  Allar þessar upplýsingar og framsetningin á þeim eru geysilega áhrifamikil lesning.  Þetta er skoðanamyndandi lesning sem enginn virðist samt hafa gagnrýnt að ráði efnislega.  Ég gúglaði 'Draumalandið gagnrýni' og allt sem kemur upp er jákvæð umfjöllun um bókina.  Upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar virðist hafa haldið uppi veikri gagnrýni sem Ólafur Páll Jónsson svarar hér: http://www.natturuverndarsamtok.is/news.asp?ID=349.  Hlekkur á síðu Björns Bjarnasonar er svo óvirkur en þar gæti kannski helst hafa leynst einhver gagnrýni. 

Ég hef lengi vel verið tvístígandi í skoðun minni á virkjana- og álverastefnunni.  Frá hægri öxlinni hefur mér borist rödd til eyrna sem segir mér að þetta sé nauðsynlegt fyrir þjóðina, álver séu góð og betra sé að hafa þau hér þar sem þau geta notað „hreina orku“ en í öðrum löndum þar sem þau menga meira og myndu þar af leiðandi hafa verri áhrif svona hnattrænt séð.  Frá vinstri öxlinni hef ég heyrt rödd sem segir að það megi ekki eyðileggja náttúruna því að þetta verði aldrei tekið til baka og að verið sé að fórna meiri hagsmunum fyrir minni.  Núna hafa hlutirnir verið settir í nýtt samhengi og röddin hægra megin hefur hljóðnað en sú vinstra megin öskrar í eyrað á mér.  Það má ekki eyðileggja landið til að selja orku á spottprís til stórfyrirtækja úti í heimi.  Ég vil heldur ekki trúa því að Austfirðingar á mínum aldri og yngri sjái draumaframtíðina fyrir sér sem starfsmenn álverksmiðju sem í ofanálag fyllir Reyðarfjörð af brennisteinsdíoxíði á góðviðrisdögum.  Allt í einu verður hugmynd Vestfirðinga um háskóla á Vestfjörðum bara alveg stórsniðug.  Ég þakka því bara fyrir hjálpina og vona að sem flestir eigi eftir að láta sig málið varða og mynda sér upplýsta skoðun.  Það er nefnilega ekki of seint að hætta við.


Hitting the spot!

Ég sló sem sagt blettinn í kvöld.  Með gömlu sláttuvélinni okkar, sem er knúin áfram af handafli einu saman.  Er smá þreytt núna en það er svo bjart enn að ég get ekki farið að sofa - ruglast alveg í ríminu svona á sumrin og langar til að vaka allan sólarhringinn.  Af hverju getur maður það ekki?  Sofið á veturna þegar það er myrkur og vakað á sumrin?  Var eitt sinn spurð að því á Spáni af eldri konu sem ég bjó hjá hvernig við færum að hérna fyrir norðan.  Hvernig við vissum eiginlega hvenær það væri komið kvöld ef það væri ýmist bjart eða dimmt allan daginn?  Sú var víst vanari því að skipuleggja daginn sinn eftir gangi himintunglanna en klukkunni... 

Annars er það að frétta að litli bró er að leggja upp í langferð á morgun (föstud.) og ég verð því ein í íbúðinni okkar í meira en mánuð (mútter að vísu ekki langt undan, eins og venjulega).  Leiðin á áfangastað er eftirfarandi: Keflavík - New York - millilending í Santiago í Chile - Lima (laugard.) - Cuzco í Perú (sunnud.).  Einmitt, vá.  Ábyggilega fyrirhafnarinnar virði samt!  Pilturinn er sem sagt að fara að læra spænsku (eins og stóra systir) en finnst Spánn ekki nógu framandi.

Þórhildur spyr hvað ég sé að fara að læra á erlendri grundu.  Það kemur ábyggilega færsla um það seinna.  Það er enn eitthvað svo óraunverulegt (og langt þangað til í september) að mér finnst hálf furðulegt að tala um það ennþá.  En ekki örvænta, það mun allt skýrast von bráðar.


Bloggvinir

Loksins kom ég því í verk að gera linkalista.  Hann er ekkert voðalega langur samt... Ef ég er að gleyma einhverjum sem ég þekki sem er með blogg (og skrifar reglulega eitthvað í það) endinlega látið mig vita Brosandi

Svona er ég

Þessum lista er stolið af blogginu hennar Hlífar (reghnlif.blogspot.com).  Ég hef sem sagt...

(/) reykt sígarettu (aldrei heila, kannski tvisvar fengið smók)
( ) klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl
( ) verið ástfangin/n
( ) verið sagt upp af kærasta/kærustu (ég sé um það!)
( ) verið rekin/n
( ) lent í slagsmálum (ég er svo prúð)
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki (já, já)
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót (einu sinni næstum samt, er of mikil skræfa) 
( ) logið að vini/vinkonu (held ekki en oft má hins vegar satt kyrrt liggja)
(x) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi (hvers konar spurningar eru þetta?)
(x) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði (neibb, en vélsleða ;))
(x) farið á skíði
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
( ) svindlað í leik (ji, getur verið að ég hafi aldrei svindlað í leik?)
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum (jarðfræðitímar á kvöldmatartíma í MR, enskutímar o.fl. í sama skóla og aðferðafræðitímar í þægilegum sætum í Háskólabíó voru mjög svefnvænir)
( ) notað falsað skilríki (nei, en allir hinir gerðu það!)
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
(x) sofið undir berum himni (í sólbaði já)
(x) verið kitluð/kitlaður
(x) verið rænd/rændur (ójá, Barcelona er stórhættuleg borg!)
(x) verið misskilin/n (stundum skilur mig enginn!!)
( ) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
( ) lent í bílslysi
(x) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni (tek það að mér reglulega að vera þriðja, fimmta eða jafnvel sjöunda hjólið, hef langa reynslu af þessu)
( ) borðað líter af ís á einu kvöldi (við mútter torgum samt alveg lítra eins og ekkert sé)
(x) fengið deja vu
( ) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út
(x) verið vitni að glæp                                                                                                                         ( ) efast um að hjartað segði þér rétt til (það veit ég ekki, pass)
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum
( ) leikið þér berfætt/ur í drullunni (of sóðalegt fyrir minn smekk)
(x) verið týnd/ur (svona í lífinu og tilverunni já, annars er ég mjög ratvís landfræðilega séð)
(x) synt í sjónum (á suðrænum slóðum, að sjálfsögðu)
( ) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
( ) litað nýlega með trélitum
(x) sungið í kariókí (það er víst)
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband