Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007
Heima - a film by Sigurrós
14.11.2007 | 22:53
Mér hlýnar alltaf smá í hjartanu á morgnana á leiðinni í vinnuna þegar ég sé auglýsingaplakat fyrir Heima, bíómynd Sigurrósar. Það hanga ein tvö plaköt við lyfturnar í Covent Garden lestarstöðinni og eru búin að gera í dágóðan tíma. Það var hins vegar bara núna um daginn að ég kveikti á því að það stendur „Heima“ en ekki „Home“ eða eitthvað slíkt og að ekkert af þessu fólki sem stendur með mér í hóp og bíður eftir lyftunni skilur hvað þetta þýðir. Mér hlýnaði ennþá meira í hjartanu og tróð mér svo inn í lyftuna með hinum vinnumaurunum...
Bloggar | Breytt 19.11.2007 kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
