Það er alveg merkilegt að upplifa allt í einu að fólk hér er almennt meðvitað um hvað er að gerast í íslenskri pólitík.  Undanfarna daga hef ég átt samræður við bæði vinnufélaga og vini um stjórnarslit og myndun nýrrar ríkisstjórnar og viðmælendurnir eru alveg með á nótunum.  Sérstaklega hefur mér komið á óvart hvað það hefur vakið mikla athygli hér að Jóhanna Sigurðardóttir er samkynhneigð því að í mínum huga þá skiptir það ekki nokkru einasta máli.  Alveg eins væri náttúrulega normal að það væri ekki fréttaefni að það verður jafnt hlutfall kvenna og karla í ríkisstjórn og að forsætisráðherrann er kona.  En lengra erum við víst ekki komin.  Ég rakst á þessa frétt núna á BBC undir þeirri dramatísku undirfyrirsögn Will Iceland's openly lesbian PM change history? en hún endurspeglar þau viðbrögð sem ég hef fengið hérna.
Það kyngir annars niður snjó hér í London í þessum rituðum - meiri snjó en ég hef nokkru sinni séð hér í borg!
Agalega er jólalegt í rigningunni og rokinu!  Kannski ekki en svolítið þjóðlegt samt.  Gott til að sýna útlendingnum sem er með í för ekta íslenskt vetrarveður.  Merkilegt hvað jólin verða miklu skemmtilegri þegar allt virðist nýtt og framandi fyrir ferðafélaganum, jólasveinarnir eru ótrúlega spennandi og það er meira að segja séns á að ég prófi skötu í fyrsta skipti í mörg ár á morgun!
Allavega, gleðileg jól og farsælt komandi ár til allra (eða þeirra tveggja eða svo sem lesa þetta ennþá...).  Hlakka til að sjá sem flesta næstu vikuna!
Ji, ég sé að ég hef verið klukkuð, jæja þá...
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
Bréfberi
Kaffibarþjónn
Búðarkona
Aðstoðarkennari í HÍ
og margt fleira
Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:
Hable con ella
Amélie
As Good as it Gets
Börn náttúrunnar
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Víðimelur 21, Reykjavík
Skálatún við Suðurströnd, Seltjarnarnesi
119 Paseo de Grácia, Barcelona
194 Drayton Park, London
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Desperate Housevifes
Ugly Betty
Peep Show
How to Look Good Naked (þegar mamma var hérna í sumar þá mættum við gok sjálfum trítlandi eftir suðurbakkanum með ungan mann upp á arminn.  meira að segja mamma skríkti eins og gelgja!)
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Peking
New York
Bahama eyjar
Spánn
Fjórar síður sem ég skoða daglega (fyrir utan bloggsíður):
hotmail.com (ógisslega leim, allir sem eru kúl eru með gmail)
mbl.is
facebook.com
news.bbc.co.uk
Fernt matarkyns sem ég held upp á:
Súkkulaðirúsínur frá Nóa
Bananar
Tælenskt karrý
Jólamatur af öllu tagi
Fjórar bækur/blöð sem ég les oft:
Les bækur yfirleitt bara einu sinni hvert stykki, er núna að lesa Óreiðu á striga eftir Kristínu Marju Baldursdóttur
The London Paper (slúðurblað sem gerir túbuferðina heim úr vinnunni aðeins bærilegri)
The Guardian (laugardagsútgáfa guardian dugir mér sem lesefni í næstum viku)
The Economist (smá vinstri-hægri blanda í gangi hérna)
Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:
Er núna heima í sófa með sofandi strák við hliðina á mér.  Það er alveg í lagi sko.
Annars væri ég til í að vera til dæmis í leikhúsi, einhvers staðar í íslenskri náttúru í góðu veðri eða í Vesturbæjarlauginni.
Eru ekki allir búnir að svara þessu bara?  Held ég sleppi því bara að klukka fleiri í þetta skiptið!
Sarah Palin er búin að vera eitt helsta umræðuefni undanfarinna daga, bæði í fjölmiðlum og hvar sem ég hitti pólitískt sinnaða vini og er endalaust hægt að hneykslast.  Jú, hún er á móti fóstureyðingum og notar litla barnið sitt með Downs Syndrome til að sýna fram á að henni er fúlasta alvara.  Ég mundi aldrei halda því fram að það ætti að eyða öllum fóstrum með Downs Syndrome en getur konan virkilega talað fyrir fjöldann?  Hún mætti í vinnu þremur dögum eftir fæðinguna og er það deginum ljósara að hún er með mikla aðstoð við umönnun barnsins.  Það geta ekki allir sagt í landi þar sem grunn heilbrigðisþjónusta er alls ekki á allra færi.
Sarah er líka á móti kynlífi fyrir hjónaband og á móti kynfræðslu í skólum því auðvitað mundi slík fræðsla einungis stuðla að hórdómi.  Ofsalega er þetta sniðugt, sautján ára dóttir hennar, ógift (alltaf tekið fram í fréttum) er komin marga mánuði á leið!  Unglingar gera nefnilega alltaf eins og foreldrar þeirra segja þeim.  En hún ætlar víst að giftast barnsföðurnum, líka sautján ára, svo að það er bara gott og blessað.  Aftur, getur konan talað fyrir fjöldann?  Ég er alveg viss um að Bristol Palin mun fara í góðan háskóla og halda áfram með lífið sitt ekki svo ósvipað öðrum sautján ára unglingum þrátt fyrir að eiga lítið barn.  Foreldrar hennar eru nefnilega ríkir og hafa efni á að borga fyrir barnagæslu um ókomin ár.  Ég efast einhvern veginn um að það sama eigi við allar þær 750.000 unglingsstúlkur sem eignast börn í Bandaríkjunum á hverju ári.
Annars á hressari nótum, þá var ég í París um þar síðustu helgi og skemmti mér ljómandi vel.  Alveg yndisleg borg og mikið að sjá.  Svo mikið að við stoppuðum ekki í túrismanum og hélt ég að fæturnir á mér mundu gefast upp alveg nokkrum sinnum á dag!  Ég setti myndir inn á Facebook síðuna mína fyrir þá sem eru þar!
...vonandi.  Ég hef verið gagnrýnd fyrir mikla bloggleti að undanförnu.  Mér til afsökunar þá er tölvan mín búin að vera frekar biluð alveg síðan harði diskurinn í henni dó.  Ég fékk mér alveg nýjan disk og góðum mönnum tókst að klambra þessu saman og redda megninu af gögnunum en tölvan hefur bara ekki verið söm við sig síðan.
Allavega.  Ég er núna búin að vera í London í viku eftir viku í Reykjavík og veit ekki hvort ég er meira pirruð á margmenninu hérna eða fámenninu í Reykjavík.  Fyrsta daginn minn heima labbaði ég niður í Vesturbæjarlaug og það var bara eins og borgin hefði verið yfirgefin.  Það sást ekki sála á götunum, hvorki gangandi né akandi.  Í dag fór ég svo á Oxfordstræti.  það var spáð rigningu svo ég var að vona að það yrðu kannski ekki allt of margir.  En nei, það var krökkt af fólki eins og ALLTAF á laugardögum, döh.  Og auðvitað allir með regnhlífar svo að fyrir utan að reyna að ganga ekki á annað fólk þurfti maður að passa sig líka að verða ekki fyrir stingandi regnhlífum!
Annars þá fjárfesti ég í nýjum gallabuxum í þessari verslunarferð minni.  Þær eru í þeirri allra minnstu stærð sem ég hef nokkru sinni komist í eða stærð 25 (jafngildir breskri 6-u!).  Ég er alls ekki að grobba mig af því að hafa grennst eða neitt svoleiðis því að ég hef alls ekki grennst neitt og buxurnar eru ekkert pínulitlar. Til samanburðar þá notaði ég gallabuxur númer 28 þegar ég var svona 14 og var pottþétt minni um mig þá en ég er núna.  Ég held að þetta sé samsæri verslunareigenda.  Það er nefnilega miklu meira upplífgandi að kaupa eitthvað í lítilli stærð en stórri.  Ég hef sko alveg sleppt því að kaupa flíkur af því að medium var of lítið...
Það er erfitt að
segja frá næstum þriggja vikna ferðalagi í stuttu máli svo að ég hef þetta bara
í punktum í þetta skiptið.  Í heildina
litið heppnaðist ferðin mjög vel fyrir utan að ég þurfti endilega að kvefast og
missa röddina um tíma.  Annars var bara
gaman gaman.
Boston og
nágrenni
Úthverfalíf í Burlington með tengdó
og sætasta hundi í heimi.
Sæt borg og sæt úthverfi.  Gamalt og nýtt, bandarískt og evrópskt.
Sætir kaffidrykkir í stórum
glösum.  Skruppum meira að segja
einn morguninn á náttfötunum í bílalúguna á Dunkin' Donuts til að ná í
risa skinny vanilla latte eða eitthvað álíka!
Stórir bílar og hraðbrautir með
mörgum akreinum alls staðar.  Meira
að segja Toyota Yaris er stór í Ameríku.
Mörgæsir og risaskjaldbökur í
sædýrasafninu.  Skjaldbökurnar
borðuðu sömu tegund af káli og ég.
Bandaríska frelsisstríðið.  Paul Revere er aðalhetjan á svæðinu og
Bretar taldir hin mestu illmenni.
Stórir skammtar.  Ég kláraði matinn minn allt of oft.
Búðir.
New York
Skýjakljúfar.  Hljómar aulalega en vá, vá, vá, vá!
Útsýni úr Empire State Building - vá
(meira að segja eftir næstum tveggja tíma langa röð).
Meiri stórborgartilfinning en ég hef
nokkru sinni fundið fyrir.  London
bliknar í samanburðinum.
Gengum á einum degi frá syðsta odda
Manhattan þaðan sem sjá má Frelsisstyttuna, alla leið upp í miðjan Central
Park með viðkomu á Wall Street, í Chinatown, Little Italy, Soho, NoHo, á
Fifth Avenue, just name it!
Brooklyn Bridge við sólarlag - mikil
stemning og fallegt að sjá yfir borgina.
Morgunverður í nágrenni Wall Street
með útsýni yfir möppudýrin sem stjórna heiminum á leiðinni í vinnuna.
Washington
Patriotismi beint í æð.  Mikil dýrkun og upphafning á forsetum og
föllnum hermönnum samanber öll minnismerkin á "The Mall".
Ótrúlega sæt og falleg borg sem
virðist svo hrein og fín að það er erfitt að ímynda sér að þetta sé eitt
mesta morðasvæði Bandaríkjanna.
Pandabirnir - það er sko frítt inn í
dýragarðinn og ég mæli alveg með því að heilsa upp á bangsana!
Kíktum á Hvíta húsið í gegnum
girðinguna (það er minna en ég hélt það væri) en komumst í frían túr um
þinghúsið (sem stendur vel undir væntingum hvað varðar stærð og íburð).
Bahamas
Þetta er óraunverulegi parturinn af
ferðinni
Eftir stutt stopp á hóteli í Miami tékkuðum
við okkur inn á "The Majesty of the Seas" (með smá erfiðismunum - ég hafði
pakkað grænum snepli sem maður fær við komu til Bandaríkjanna niður í
ferðatösku og þurfti að leita að töskunni minni innanum allan farangur
hinna 2000 ferðalanganna til að hægt væri að tékka okkur Mike inn)
Þjónar og þernur á hverju strái - ég
hef aldrei gist á eins fínu hóteli og skipið var (ef undanskilin er stærð
og gluggaleysi á herberginu!)
Sól, sandur, túrkísblár sjór,
pálmatré og meiri sól.
Brunninn magi og enn meira brunnið
bak.
Matur eins og maður getur í sig látið
allan daginn ef maður bara gæti.
Ahhhhh
Á föstudaginn ætla ég til Ameríku!  Ferðinni verður fyrst heitið til Boston að heilsa upp á tengdó, en Mike hefur ekki farið heim til sín í meira en ár.  Mig hefur lengi langað að fara til Boston og væri alveg sátt við að fara bara þangað.  Eftir rúma viku í Boston ætlum við nú samt að fara í smá ferðalag.  Við tökum fyrst rútu til New York þar sem við fáum að gista hjá vinafólki í tvær nætur, svo verður ferðinni heitið til Washington DC þar sem við ætlum einnig að heilsa upp á vini og gista í tvær nætur og svo ætlum við að fljúga til Miami.  Ekki af því að okkur langi til að sjá Miami heldur er það upphafsstaður siglingarinnar okkar til Bahama eyja!
Það er skemmst frá því að segja að ég hef aldrei til Bandaríkjanna komið og aldrei stigið fæti mínum á skemmtiferðaskip heldur.  Þetta verður því væntanlega mikið ævintýri og gaman frá að segja seinna!
Um síðustu helgi leigðum við Mike ásamt vinapari bíl og héldum út í óbyggðir (eða þannig) Englands.  Ég hef lengi þvertekið fyrir að setjast undir stýri hér í landi, enda er eins og flestir vita vinstri umferð hér og allt öfugt eftir því - bílstjórinn í hægra sætinu með gírstöngina á vinstri hönd, öfugur hringur í hringtorgum, vinstri réttur o.s.frv - en komst ekki hjá því að keyra í þetta skiptið enda kunna fæstir Ameríkanar að keyra beinskipta bíla.  Aksturinn gekk nú samt alveg merkilega vel, þrátt fyrir að við rötuðum ekkert og værum vitlausu megin á götunni.  Sumir (ekki ég samt) ákváðu annað slagið að halda sig bara hægra megin og þá kom sér vel að vera með nokkra aftursætisbílstjóra!
Ferðinni var haldið út um allar trissur, aðaláfangastaðurinn var samt Vatnahéraðið eða The Lake District sem er nálægt Skotlandi.  Þar eru fjöll og firnindi, stöðuvötn á hverju strái eins og nafnið bendir til og lítil falleg þorp með hlöðnum húsum.  Gasalega sætt bara.  Við komum líka við í Nottingham í bakaleiðinni og stoppuðum í skógi Hróa Hattar.  Þar sáum við risastórt ævagamalt eikartré þar sem Hrói og co söfnuðust saman og þar voru einnig menn sem skutu af boga í anda Hróa og félaga.
Ég set ábyggilega nokkrar myndir á Facebook bráðum fyir þá sem eru þar...
Í vikunni laumaði ég mér inn á kjörstað í forkosningum Demókrata búsettra erlendis sem haldnar voru hér í London á „Super Tuesday“.  Mike er náttúrulega með kosningarétt og fór ásamt nokkrum kunningjum eftir vinnu til að kjósa.  Ég fékk að fylgja með, svona til að passa upp á að allt gengi nú vel fyrir sig.  Hmm...  Það var mikil stemning á svæðinu, fólk með Hillary og Obama skilti, blöðrur og klætt bolum með nöfnum frambjóðenda og Clinton og Obama smákökur til sölu.  Ég hef reyndar aldrei tekið þátt í prófkjöri og veit ekki alveg hversu „leynileg“ þau eru heima en mér fannst frekar spes að sjá að þetta var alveg fyrir opnum tjöldum.  Skrifa þurfti nafnið sitt á kjörseðilinn og kvitta fyrir, svo fóru allir í röð og gengu upp á svið einn í einu og settu kjörseðilinn sinn í kjörkassa merktan þeim frambjóðanda sem þeir kusu.  Það var reyndar nafnlaus kjörkassi fyrir þá sem vildu aðeins meiri leynd en fæstir nýttu sér þann möguleika.  Við stóðum svo þarna í dálitla stund og fylgdumst með hverjir kusu hvern.  Það er skemmst frá að segja að langflestir stoppuðu við Obama kassann, einnig tók ég eftir því að flestir sem kusu Clinton voru kvenkyns.  Seinna las ég að samkvæmt fyrstu tölum hefði Barack fengið meira en tvisvar sinnum fleiri atkvæði en Hillary.
Á föstudagskvöldið vorum við Mike svo ásamt vinapari viðstödd upptöku á nýjum skemmtiþætti Lily Allen, Lily Allen and Friends.  Vinkonu okkar áskotnuðust miðar og við ákváðum að láta slag standa og skella okkur í áhorfendahópinn.  Þess má geta að þetta var fyrsti þátturinn og við vissum ekkert út í hvað við vorum að fara.  Hoppuðum bara upp í lest eftir vinnu og héldum beina leið í stúdíó BBC í Slough (þar sem Office þættirnir gerast). Ég var með aulahroll allan tímann, fékk fyrst alveg áfall þegar við vorum látin „hita upp“ með því að syngja og dansa áður en upptakan hófst.  Hugleiddi alvarlega að láta mig bara hverfa.  Svo byrjar þátturinn og hvert atriðið var furðulegra en það sem á undan kom.  Nokkrir áhorfendur voru pikkaðir út með spurningalista sem okkur var afhentur í byrjun og látnir segja frá furðulegum hlutum sem þeir höfðu gert.  Við komumst til dæmis að því að einn strák hefði dreymt blautan draum er hann deildi rúmi með vini sínum á ferðalagi og að annar starfaði sem fylgdarsveinn.  Myndbönd voru sýnd af mökun nokkurra dýrategunda - af því að það er svo fyndið - og stutt myndskeið af netinu af fólki sem getur gert furðulega hluti eins og að teygja á sér andlitið óvenjulega mikið.  Gestirnir voru samt alveg nokkuð áhugaverðir þó að samtölin sem þeir áttu við Lily hafi verið frekar þunn.  Þeir voru leikararnir David Mitchell úr snilldarþáttunum Peep Show og Cuba Gooding Jr. sem fór úr peysunni á sviðinu (hot hot hot).  Svo var þar líka þessi gaur: og tvær miðlungsgóðar hljómsveitir.  Mæli hvorki með þessum þætti, né að vera áhorfandi í sjónvarpssal - upptakan tók um 3 tíma og við vorum látin standa allan tímann.  Eftir á vorum við svo næstum föst í Slough því að við fengum ekki leigubíl frá stúdíóinu á lestarstöðina og bara rétt náðum síðustu lestinni tilbaka til London.
Í gær fór ég á einn uppáhaldsstaðinn minn í London, Borough markaðinn.  Ekki til að versla föt, skartgripi eða antíkmuni heldur mat.  Versla mat og smakka mat.  Umm.  Þar er að finna dýrindis osta, ólívur, sultur, chutney, pylsur, sætindi og fleira og fleira á ótal básum.  Og allir vilja gefa manni að smakka svo að  það er alveg hægt að verða sæmilega saddur af því að labba einn hring.  Ég er ekki frá því að mér finnist Borough markaðurinn eiginlega bara meira spennandi en Portobello Road og Camden markaðirnir.  Allavega getur maður alltaf fundið eitthvað við sitt hæfi og jafnvel þó að maður kaupi ekki neitt þá fer maður aldrei svangur þaðan.  Við freistuðumst á að kaupa bita af tveimur ostum og dall af ólívum sem bíða í ísskápnum en eiga ábyggilega ekki eftir að vera til lengi.
Hvað segir maður annars þegar maður hefur ekkert skrifað í einn og hálfan mánuð?  Ég útskrifaðist í desember og er núna komin með MSc gráðu (textinn í höfundarboxinu á þessari síðu er löngu orðinn úreltur), fór heim um jólin, kom aftur til London og svo er bara allt við það sama, það leikur allt í lyndi.  Eru ekki engar fréttir góðar fréttir?